Zim's base

Memory Lives In The Heart

11.11.2006 13:09:20 / Master ZiM

oooó

ég er byrjuð að hugsa!! ætti ég að flytja mig hingað aftur?

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 15:13:15 / Master ZiM

FLUTT!!

JEBB, ég er komin með nóg af þessu lélega kerfi.!! They can take their extra's and stick them up their ***** Svo virkar aldrei "insert picture" og "insert link"

Þið hélduð kannski að ég væri hætt að blogga en NEI.. ég er bara búin að vera að vinna í því að flytja síðuna mína. Nýja síðan er
http://rhea.blog.is/blog/rhea

ZiM -flutt!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 17:51:03 / Master ZiM

Titill.

Ég er bara nokkurn vegin endurnærð eftir æðislega páska.:D Var í fríi frá skírdegi og að öðrum í páskum og hafði það sko gott. Var á fullu að læra á milli afslöppunar.
Ég, mamma og Höskuldur höfðum það mjög kósý saman, horfðum á video á kvöldin með ís og skemmtilegheit. Mamma er semsagt að hætta ljóta ávananum og ég ætla að styðja hana eins og ég get:haha:. Ég gisti hjá henni allt fríið og á meðan ég lærði heima var hún bara að þrífa (hún tók eitthvað voða þrifnaðaræði). Við elduðum saman góðan mat handa okkur 3 alla dagana nema laugardaginn (afgangar í matinn).8)

En að öðru: Hvað er eiginlega málið með þessa blessuðu aukahluti? Það er varla að maður nenni að vera alltaf að stilla þá inn og koma þeim fyrir.:S En ég geri það samt, ætla ekkert að vera að leyfa þeim að svindla á mér með því að láta mig borga fyrir eitthvað sem að ég er svo ekki að nota. En það mætti laga þetta!8|

Nýjustu fréttir: DJÚPSTEIKINGARPOTTURINN MINN BRÁÐNAÐI. Þetta er ekkert grín.8| Hann bráðnaði á bekknum (og skemmdi bekkinn), bara við venjulega notkun, þ.e.a.s við að steikja franskar.:whut: Auðvitað fór ég og skilaði pottinum. "Mig langar til að skila þessum potti". "Nú, hvað er að honum?". "Hann bráðnaði".
Ekki beint samtal sem að maður býst við að lenda í.:$

ZiM, ekki vinur rafmagnstækja.

» 6 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 17:40:42 / Master ZiM

Fallega skýið mitt.

Jebb, ég svíf um á bleiku skýi þessa dagana.:haha: Þó svo að 2 af mínum "vinkonum" séu búnar að vera að fara á bak við mig og ljúga um mig.:$ Stærri og mikilvægari hlutir eru í gangi og ekkert annað vinnur á því.8|

Ég er að upplifa einhverja skrýtna tilfinningu, sambland af gleði og ánægju. Ég brosi bara:D Mig langar bara til að syngja og dansa um allt. Ég er að fyllast von. Mér finnst eins og að ég svífi bara um (hence the pink cloud). Er ég að ná mér upp úr lægðinni sem að ég er búin að vera í undanfarna mánuði? Er ég loksins hætt að sökkva dýpra? Er mér að takast að yfirbuga þunglyndið?
Er þetta hamingja? Ég finn fyrir breytingu á mér. Það er kosturinn við mennina, við getum alltaf þroskast meira andlega. Ég held að við höldum áfram að þroskast 'til the day we die, bara mishratt.
Ég finn ekki fyrir þörf til að rífast við fyrrnefndar gellur, langar samt að skýra mál mitt og heyra þeirra hlið á málinu. Þó að við sættumst ekki, þá getum við allavega skilið á réttum forsendum og þurfum ekki að líta tilbaka og hugsanlega sjá eftir því seinna.
Anyways, ég ætla að reyna að halda mér á skýinu mínu. Föllin verða alltaf hærri og verri í hvert skipti svo best að reyna að sleppa við þau. Ég ætla ekki að bíða eftir fallinu sem gerir út af við mig, ég ætla að sleppa við það.

ZiM on a pink cloud


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 20:16:58 / Master ZiM

Risin úr rekkju.

Ég ætlaði að fara á EGO síðustu helgi because hello, a huge Bubba fan. En nei!! Elín lagðist í veikindi á laugardaginn. Ég seldi Ragga miðann minn og lá heima í biturð og veikindum.:evil: Svo að síðan á laugardaginn þá er ég búin að vera rúmliggjandi að berjast við hita, hita-og kuldaköst til skiptis, brjálaðan hósta, svima, hausverk, beinverki, eyrnabólgur, augnkvef (já, ég veit að þetta er heimskulegt hugtak en samt til) og ég hef ekki getað étið frá mér sorgir því að ég hef ekki haft neina matarlyst:cry:
Ég ætlaði að klára VFR ritgerðina (sem að ég á að skila á morgun) en hef ekki getað gert handtak. En þar sem að Elli er skilningsríkur þá held ég að hann veiti mér smá frest.

En að öðru merkilegra: EINHVER BÉVÍTANS HÁLFVITI DIRFÐIST AÐ KEYRA Á HÖSKULD!!! Seriously, er verið að reyna að útrýma okkur? Þegar Steinunn var tiltölulega nýkomin með prófið vorum við fjölskyldan að fara út í sveit. Það var svínað fyrir Steinunnni, hún sveigjir frá og lendir á öðrum bíl:evil: Það var keyrt á mig TVISVAR í einum mánuði síðastliðið haust, bæði skiptin er ég í rétti. OG nú: á föstudaginn kemur einhver bavíani á pick-up og keyrir inn í bílstjórahliðina á Sukkunni hans Höskuldar.:evil: Hann slapp alveg ómeiddur, sem betur fer. Hann var á gatnamótum þar sem er hægri regla og ætlaði að beygja til vinstri. Samt stoppaði hann til að vera sure. Þá kemur pick-upinn á of miklum hraða (þetta gerist í 30 hverfi), nær ekki að bremsa og keyrir inn í vinstri hliðina á Sukkunni. Bíllinn hans Höskuldar er ekkert lítið skemmdur. Það er mót af pick-upnum í bílnum hans Hökka. Áreksturinn sjálfur er lengri saga þar sem að aðstæður og svoleiðis eru issue og erfitt að lýsa hér. Þið getið alltaf spurt næst þegar þið hittið mig ef þið viljið vita meira.

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 18:12:58 / Master ZiM

Fuck Anger Management Control

Apaköttur, apaspil

að þú skulir vera til,

svona grettinn, grár og ljótur.

Apaköttur, apaspil.

 


Í fjöru skal ég finna þig,

því að þú ert að skensa mig.

Eplum skal ég í þig henda

VISSAST ER AÐ VARA SIG.

 


Katrín María, það er eins gott að það sé ekki búið að fylla upp í skurðinn sem að við grófum því að ég ætla að koma og hjálpa til. Ég þarf að grafa lík!!!!!!!:^)

Það er einn kennari upp í VMA sem að ég HATA.:evil: Eini kennarinn sem að ég set eitthvað út á, því að kennarar þurfa að hafa mikið fyrir því að ég skilji þá ekki eða þoli þá ekki. Sem gott dæmi þá finnst mér Palli Hlö fínn kennari.:)



 

 


En NEI ekki þetta helvíti.:evil: Hann svarar ekki spurningum sem að maður spyr hann heldur útskýrir allt annað í kringum hlutinn.:whut: Hann er mjög staðnaður í kennslunni og það má eiginlega ekki í þessum tækniáfanga sem að hann kennir því að þessi tækni breytist mikið og hratt.:whut: Honum virðist vera alveg andskotans sama, hann hefur ekki unnið við þetta í einhver 20 ár og tekur enn mið af því hvernig þetta var þegar hann var að vinna við þetta.:whut: Hann reynir (og þá er ég ekki að ýkja) að vera eins fucking strangur og hann kemst upp með:evil:. Ég var hjá honum í fyrri áfanganum líka og hann hefur bara versnað.:frown: Kennsluáætlunin er honum svo heilög að þegar við vorum komin á eftir kennsluáætluninni þá fengum við SPEEDY kennslu.:^) Ég er að tala um það að hann fór það hratt yfir efnið að enginn skildi hann og við höfðum ekki undan við að yfirstrika það sem hann talaði um. Og það var ekki okkur að kenna að hann hagaði kennslunni þannig að þetta myndi lenda svona því að við erum ekkert að trufla hann við kennsluna.:whut: Það er meira að segja varla spurt spurninga því að hann veit aldrei svörin.:whut: Hann kennir okkur mjög lítið, það eina sem hann gerir er að þýða upp úr bókinni. Svo að vanalega hafa tímarnir gengið út á það að glósa upp af glærum. Þangað til að maður hafði ekki lengur tíma til að svo lítið sem fylgja honum eftir í bókinni.:evil: Og hann er svo mikið reglugerðafrík, reglur eru bara reglur og þær eru heilagar og jörðin ferst ef að það er ekki farið 100% eftir þeim.



  • Í þessu áfanga er möguleiki á að sleppa við lokapróf ef að maður er með hærra en 7,5 í meðaleinkunn úr kaflaprófum og 90% mætingu. Í fyrri áfanganum var ég með yfir 9 í meðaleinkun en bara 89% mætingu því að ég lá heima með berkjubólgu í dágóðan tíma.:cry: Honum var sama, ég hefði bara átt að mæta, fá lungnabólgu, leggjast inn á sjúkrahús og missa enn meir úr skóla.:evil: Eftir miklar rökræður og reiðilega rödd þá stóð hann enn á sömu skoðun.:frown: Svo komst ég að því að prósentan hafði misreiknast þannig að hún skreið upp í 90% þegar önninni lauk, svo in his FACE.:klikk::klikk:

 

Og núna er ég í 202 áfanganum og hvað: Ég er með 8 í meðaleinkun :haha: en það vantar 2% upp á mætinguna og það er ekki misreikningur. Ég hef aldrei skrópað í þessum áfanga. Þegar ég segji skrópa þá er ég að meina sleppa tímanum af því að maður nennti í hann. Nei, ég fékk flensu og þurfti að vera heima.:cry: Svo er búið að vera mikið að gera svo að ég vera að mæta aðeins of seint, oftast ekki nema örfáum mínútum:!::!:. Ég útskýrði fyrir honum af hverju þetta væri svona hjá mér en allt kom fyrir ekki. ÉG HATA ÞETTA ÓMENNSKA, HARÐBRJÓSTA KVIKINDI!! :evil::evil::evil::evil::evil:



Hann getur ekki verið mennskur eftir að heyra af hverju og sýna samt ekki vægð. “Ef ég hleypi þér í gegn þá kemur sá næsti og næsti og næsti”. Já, það eru nebbla allir í bekknum að reka heimili, að ala upp erfiðan ungling og sjá fyrir honum, í vinnu, læra alltaf heimalærdóminn samviskusamlega, í sjúkraþjálfun og til að bæta það: að sprengja streitumælikvarðann, reyna sitt besta við að glíma við alvarlegt þunglyndi og fleiri andlega örðugleika, algert svefnleysi og alltaf líkamlega veikir. MEÐ skólanum. Veistu NEI. Þetta á ekki við aðra manneskju í bekknum. :^):^):^):^):^):^):^):^):^):^)


So fuck anger management control, I am going to strangle him.:klikk::klikk::klikk:



 

 


ZiM going to kill




» 6 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 17:14:22 / Master ZiM

Ammli

Jæja þá er loksins að ég blogga.


Mig langar í þræl! Þannig að það eina sem að ég þurfi að gera er að vinna úti. Þrællinn sér um allt annað, sama hvað það er. Ef mig langar í skurð úti í garði þá fer hann og grefur skurð til þess eins að þurfa að moka ofan í hann aftur.:klikk: En nei, ég á engan þræl. Í staðin er ég þræll:



 

Laugardaginn fyrir viku þá er ég að tala við Kötu. Hún segir: hey, langar þig að koma að grafa skurð með mér? Ég samþykkti án þess að vita almennilega hvað ég var að koma mér út í. Og ég mæti heim til hennar og já. Það var verið að grafa skurð. Ég og Kata (svona óendanlega duglegar) grófum 8 metra langan, 1 meters breiðan og rúmlega 1 meters djúpan skurð.8) Þegar ég var búin að vera að grafa í svona 2 tíma þá fer ég að tala um að mig langi ég þræl. Þá hefði ég getað staðið bara á bakkanum og horft á þrælinn grafa skurð launalaust. Kata og bróðir hennar litu hvort á annað og segja: Hún veit virkilega ekki sín hlutskipti í lífinu! 8|


Og seinna sama kvöld hitti ég æskuvin minn frá Árskógssandi.:D Við höfðum ekki sést í mörg ár. Skemmtileg saga, segðu hana aftur.



 

 


Það er búið að vera nóg að gera síðan síðasta blogg. Ég ætlaði að vera löngu búin að blogga helling af skemmtilegum sögum en nei, þar sem að ég kom mér ekki í það þá, þá man ég þær ekki núna.:S En auðvitað hendi ég þeim inn þegar þær rifjast upp fyrir mér.:$ Annars er ég mest búin að vera bara að læra undanfarnar vikur. Nema auðvitað um helgina sem að var að líða:


Á laugardaginn síðasta (25.mars) átti Björg afmæli.:haha: Mín yndislega æðislega Björg og var það því merkisdagur. Ég fór í kaffi til hennar um daginn og bakaði fyrir hana. ég BAKAÐI og kakan var góð!!:haha: Svo fórum við að græja sameiginlega afmælispartýið okkar. Blanda bollu og eikkað svoleiðis. Sögðum fólki að koma um 9 leytið en auðvitað vorum við ekki tilbúnar þá:$. Það breytti engu, fólkið fór bara að tala saman og enginn pirraður. Það var sko allt fljótandi í áfengi þarna, bolla (sem var góð), hvítvín og bjór.:klikk: Það var gegt gaman, nóg af fólki og allir hressir. Við fórum m.a í SingStar og misstum okkur! Vel heppnað afmæli að mínu mati.:haha:8)





 


ZiM orðin tvítug.




» 6 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 19:08:44 / Master ZiM

Methafi!!

Djöfull er ég búin að vera léleg að blogga, ég veit alveg upp á mig sökina.:$ Enda kannski ekki mikið búið að gerast. Lagðist í veikindi, hundleiðinlegt.:evil: Allt video og DVD sem að er til hérna kann ég utan að svo að Björg lánaði mér fyrstu 2 og hálfa seríuna af CSI. Guess what? I am hooked.:klikk: Ég er komin með CSI æði, og þarf að flýja sjónvörp til að horfa ekki á þættina. I love Grissom.:D

 Ég semsagt lagðist í veikindi miðvikudaginn í síðustu viku en á laugardagskvöldið nennti ég ekki að vera veik og varð að komast út.:$ Mér fannst ég svo mygluð að ég fór tvisvar í sturtu áður en ég fór út úr húsi! Ég og Björg kíktum í teiti sem að endaði í BUZZ spurningaleiknum og var það bara helvíti gaman. Fórum svo á rúntinn þegar liðið fór í bæinn enda báðar edrú.8)

 Ég þráaðist svo ennþá við í vikunni og mætti í skólann og tók þátt í opnu dögunum. ÉG.. já, ég tók þátt.:!: Ég og Björg fórum á “Kynning á Kenya” og svo á daðurnámskeið Helgu Braga á þriðjudaginn. Kynningin var fín þar sem að ég hef áhuga á Afríku. Helga Braga var æði, ég og Björg veltum næstum um af hlátri. Aldrei datt mér í hug að mér myndi finnast Helga Braga svona skemmtileg (hef aldrei þolað hana). Á miðvikudaginn fórum við fyrst á “Spíratalismi – Líf eftir dauðann”, hélt að það yrði fræðandi en helvítið sem að hélt fyrirlesturinn vissi ekki neitt um hvað hann var að tala, viðurkenndi það meira að segja sjálfur. Hann talaði bara um “þegar ég var ungur...” og sagði okkur eitthvað um lífið sem að ég er löngu búin að læra af lífsreynslunni. Svo að við gengum út og fór að horfa á efnafræðitilraunir. Þar var gaman enda er Bensi SNILLINGUR (fyrir þá sem ekki vita þá er Bensi efnafræðikennari VMA). Það var endað á því að leika sér með litinn á rauðkáli og ég fékk að leika mér heilmikið með það! Já, þeir treystu mér fyrir því að meðhöndla Saltpéturssýru!! Aðallega Garðar samt því að Bensi var að ganga frá, veit ekki hvort að Bensi hefði leyft mér það eftir að ég var soldið kærulaus með hana síðast þegar við gerðum tilraun í tíma. :$

Saga: Við vorum að gera tilraun í efnafræði þar sem að við áttum að einangra málma. Það er flestum sama hvernig tilraunin fór fram (mér fannst þetta samt skemmtilegt) en við þurftum að nota sýru. Við vorum með blöndu af sýru og málminum sem að við vorum að leita að í svona litlu mjóu tilraunaglasi. Við áttum að mæla sýrustigið til að vita hvort að þetta hefði heppnast hjá okkur og notum mjög litla PH-strimla. Auðvitað setti ég bara strimilinn ofan í glasið og þá spyr Bensi: “Hvernig ætlaru svo að ná honum upp aftur?”. Auðvitað set ég þá lillaputta ofan í glasið og veiði strimilinn upp úr. Bensa leist EKKI á það. Ég endurtók svo nákvæmlega sama leik þegar við vorum með basa og mæla basastigið seinna í sömu tilraun. Bensa var ekki sama.

 Mér leið samt pínu eins og að ég væri í litblinduprófi því að blöndurnar voru mismunandi á litinn og alltaf er ég spurð: “Hvernig er þetta á litinn?” Ohh well, wonder if I passed.8|

 Aftur að dagbókinni: Eftir hádegi á miðvikudaginn fórum við Björg í klifrið hjá Björgunarsveitinni. Það var smá feimni í fólki svo að einn umsjónarmaðurinn (nemandi á Vélstjórn) kallar á mig og segir að ég þurfi að brjóta ísinn. Sure. Ég er beltuð svona voða fínt og veit ekkert hvað er verið að fara að láta mig gera, hélt að ég væri að fara á vegginn. En NEI, hann var að láta mig í kassaklifur. What the fuck.. Hvernig virkað það? Ég náði 11 kössum, datt við að setja 12. kassann á. Svo fórum við Björg á vegginn.Á meðan tókst einhverri stelpu að ná fleiri kössum en mér. Það var smá keppniskap í mér og ég fór aftur í kassaklifrið, náði 19 kössum, kominn upp í loft og spyr “Hvernig á ég svo að komast niður?” Þá er kallað á mig ”Tilbúin”, “NEI” og svo er sparkað í þessa fínu kassastæðu mína sem að ég erfiðaði svo mikið við að koma upp. Það var samt gaman að hanga í loftinu. Og ég sló metið þarna! HAHA BEAT THAT.

 

 

 

ZiM kassaklifrari


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 17:44:03 / Master ZiM

klukkdót og helgin í hnotskurn

Bíllinn minn er komin í lag, thanx Raggi:). Annars er ekkert gott í fréttum:(. Ég fór út í Hátún á föstudagskvöldið og eyddi helginni út í sveit. Ég var ekki upp á mitt besta á laugardaginn. Klukkan 3, aðfaranótt laugardagsins þá voru liðin 10 ár frá brunanum. :cry::cry::cry::cry:Það segja árin. Tilfinningin segir að þetta hafi verið að gerast núna um helgina. Mér líður ekki eins og það séu liðin 10 ár, mér líður eins og mér gerði FYRIR 10 árum. Þetta var virkilega erfið helgi, er að vinna í því að ná mér aftur á strik. Helvítis.
En ég ætla ekki að tjá mig of mikið um það hér, if anybody cares, he/she can call! Ég ætla að villa um fyrir ykkur og henda hérna inn einhverju klukk-drasli. :$

Fjórar vinnur sem ég hef unnið um ævina: 
Fiskvinnslugella hjá ÚA hf. (nei ég segji ekki BRIM)
Afgreiðslugella og eldari hjá Tikk Takk
Verðmerkingargella hjá Norðlenska
Og auðvitað verður maður að nefna Unglingavinnuna ógleymanlegu 

 

Fjórar bækur sem ég gæti lesið aftur og aftur:
Dætur Regnbogans eftir Birgittu H. Halldórs.
Allar bækur eftir Sidney Sheldon
Allt Harry Potter safnið.
Nótt á Mánaslóð eftir Birgittu H. Halldórs.
Myrkur í maí eftir Helga Jónsson
Peð á plánetunni Jörð (man ekki höfundinn)
Já, ég átta mig á því að þetta er miklu fleiri en 4 bækur. Ég dýrka að lesa og er mikið fyrir að lesa sömu bækurnar aftur. Mér finnst þær góðar svo af hverju ekki?

 

Fjórar bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:
The Matrix
Ace Ventura Pet Detective (báðar myndirnar)
Emperor’s New Groove (hún var í bíói)
X-Men (báðar myndirnar sem hafa komið út)

 

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
H
mm… hvaða 4 af tæplega 30 stöðum sem ég hef búið á ætti ég að velja!
ddeyrargata 30
Öldugata 7, Árskógssandi (my first home)
Skarðshlíð 24 (bjó þar lengst af þeim íbúðum sem að ég hef búið í hér á AK) Reynilundur 12 (fyrsta íbúðin sem að ég bjó í eftir að ég þurfti að standa alfarið á eigin fótum)

Fjögur lög sem ég held uppá:
One - Metallica
The Unforgiven II – Metallica
Fade to Black – Metallica
Getting Away With Murder – Papa Roach
Don’t Wanna Miss a Thing – Aerosmith 
You’ll Be in My Heart – Phil Collins
Aftur, ég veit að þetta eru fleiri en 4, gat bara ekki skilið neitt af þeim útundan. Það er samt hellingur af fleiri lögum sem að ég held upp á. 

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Friends
Buffy, the Vampire Slayer
O.C
Joey

 

Fjórir staðir sem ég hef heimsókt:
Eina útlandið sem að ég hef heimsótt er Hrísey (sorry Steinunn og Jesú)
Annars hef ég ferðast um allt Ísland frá krummaskuðum til hálendisins.

 

Fjórar síður sem ég skoða daglega:
Ég get nú ekki sagt að ég fari á netið daglega en
Blogg vina
Lúturinn

 

Fernt matarkyns sem ég held uppá:
Svínahamborgarahryggur
Nautakjöt (medium-rare)
K
júklingur
Bayonnies-skinka 

 

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
Thinking of them makes me bitter. Myndi samt helst vilja vera með ákveðnum special someone.

Átta bloggarar sem ég klukka: 

Hell No, this madness ends here! 

Love ZiM

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 21:09:29 / Master ZiM

AAAAAAAAAAAAAARRRRRRRRRRRRRGGGGGGGGGGGGGHHHHHHHHHHH

:^):^):^):^):^):^) Ef að ég verð ekki endanlega BRJÁLUÐ eftir þessa viku þá engar áhyggjur, aðfaranótt laugardagsins mun þá klára verkið!!! :evil::evil::evil:

Bíllinn minn er BILAÐUR:^) og allt sem að átti að vera bilað er í lagi en lífið er auðvitað ekki svo gott því að það komu bara aðrar bilanir í ljós:evil:.. Fyrst hélt ég að alternatorinn væri bilaður, farin lega, svo að ég var ekkert að stressa mig að skipta fyrr en ekki mátti hreyfa bílinn, komin sqeekidy hljóð og bíllinn byrjaður að koka. EN eftir að ég skipti um alternator þá lagaðist ekkert, ég fór og lét mæla tórinn og þá koma í ljós að hann var í TOPPÁSTANDI sem þýðir að vatnsdælanfarin (sjúkdómseiginleikarnir bentu á annað hvort) og er það meiri og leiðinlegri viðgerð. Svo hélt ég að bremsuklossarnir væru farnir (út af sqeekidy thingyinu) en þegar ég var að fara að skipta þá var allt í lagi með klossana EN bíllinn er GORMABROTINN hægra megin. Það er ömurlega leiðinleg viðgerð og ég þarf gormaklemmu sem enginn virðist eiga því að enginn tímir að kaupa sér gormaklemmu sem að maður notar örugglega bara einu sinni. Og svo er komið gat á einn barka sem að skiptir ekki allt of miklu máli og ekkert mál að skipta um, tekur 2 sek, en verk engu að síður. :cry: Ef að ég hefði ekki M.U.F.Ca sem varahlutabíl þá myndi ég aldrei hafa efni á þessu!! En sorglegt að þurfa að tæta þennan æðislega bíl svona niður, hans er saknað:cry::cry:
Nú er eftir nóg að gera, setja alternatorinn AFTUR í Red Devil, ná vatnsdælunni úr M.U.F.Ca, taka vatnsdæluna úr Red Devil og setja dæluna úr hinum í, ná gormunum undan M.U.F.Ca, taka gormana undan Red Devil og setja hina undir, og taka barkann úr M.U.F.Ca og setja í Red.
+ allur heimalærdómurinn sem hrannast upp og ég hef eiginlega ekki undan við að gera.

Andskotans, djöfulsins heilagasta HELVÍTI......

ZiM, loosing it's mind.

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 22:19:35 / Master ZiM

ÉG, hrekkjótt!! neeei

Það kom smá púki í mig og ég bara varð. Ég var víst búin að lofa því í síðustu færslu að segja þessa sögu. Lofaði reyndar að hún yrði kominn inn í síðasta lagi á mánudaginn but I've been busy. Læra, og svo hitta Kötu, hitta Björgu, heimilisverk, endurhæfing, sjúkraþjálfun. I'm just a one person. En jæja, best að koma sér að efninu.

 Ég bara varð að sjá viðbrögð hans. Ég hefði örugglega ekki þorað sjálf.

Í síðustu viku fékk ég flugu í hausinn. Reyndar ekki alvöru flugu, meira svona hugmynd. Í gamla gamla daga var víst hefð fyrir því að færa kennara sínum rautt epli. Mér datt í hug að gefa kennaranum mínum epli, nema hvað? Án þess að hann vissi hver hefði gefið honum það (hann hefði strax vitað að eplið væri í lagi ef hann vissi að ég hefði komið með það). Og ég valdi honum þetta stóra, gullfallega, eldrauða epli (sem minnir mikið á ákveðið ævintýr). Þetta er nefnilega mikill ólátabekkur, og mikið grín alltaf í gangi í tímunum. Og auðvitað eru nokkrir algjörir rugludallar þarna líka. Kennarinn ekki mikið skárri, frábær kennari í alla staði. Þessi kennari kennir vel, er hress og með húmorinn í lagi. Hann skilur nemendur og það er reyndar alltaf sagt að hann sé nemandi sjálfur enda er hann tvítugur í anda. Mótorhjólatöffari með meiru. Hann reykir og leyfir okkur þess vegna að fá 10 mín aukapásu í miðjum tíma. (Ussss, ekki segja) 
Á föstudaginn stóðu flestir upp og yfirgáfu stofuna í þessari pásu, nema ég og þrír aðrir strákar. Ég set eplið á kennaraborðið, ofan á blað sem að ég hafði látið merkja með nafni kennarans, og labba líka út úr stofunni. Kem svo inn í stofuna á svipuðum tíma og hinir, svona svo að sem fæstir viti hver setti eplið þarna. Allir voru að spá í hvaðan eplið kom en enginn vildi kannast við að hafa komið með það. Þegar kennarinn kemur inn í stofuna bendum við honum á eplið. Ef að ég vissi ekki hvernig þessi bekkur væri þá hefði mér þótt ótrúlegt að allur bekkurinn myndi spila með. Hann verður mjög hissa og spyr hver hafi sett eplið þarna. Enginn svarar. Hann labbar aftur að töflunni og við byrjum að spyrja hvort að hann ætli ekki að borða eplið.
"Nei, þetta minnir mig of mikið á sögu, ákveðið ævintýri um unga stúlku sem að bjó hjá 7 litlum mönnum" segir hann.
Við höldum áfram að hvetja hann til að bíta í eplið, allur bekkurinn var með í þessu.
Þá kemur allt í einu úr kennaranum "Vitið þið hvað er verra en að finna orm í eplinu sínu? Að finna hálfétinn orm í eplinu sínu" og svo fer hann að reyna að kenna okkur eitthvað. Við ætluðum samt ekki að gefast upp og minntumst reglulega á eplið og stungum reglulega upp á því að hann tæki bita af eplinu. "Fáðu þér bita" Svo endar það með að ég spyr "ætlaru ekki að borða eplið?" Nei segir hann. "Treystiru okkur ekki?" Nei segir hann. :cry:

Í lok tímans gerum við svo loka tilraun og byrjum aftur að spyrja hvort hann ætli nú ekki að borða eplið. Þá segir hann að honum dauðlangi reyndar í eplið og sé að spá í að borða það. Við spyrjum hvort við megum horfa á. Honum leist ekki á blikuna og sagðist ætla að fara með það inn í kennarastofu. "Nei, þá verða hinir kennararnir öfundsjúkir" segjum við. Hann tekur eplið og labbar út.

Ætli hann hafi borðað það? Myndir þú borða það? 8|

ZiM


» 10 hafa sagt sína skoðun

03.02.2006 19:49:36 / Master ZiM

Sandra mætt á svæðið :)

Is it better to have done the love and lost then never have done the love at all?

To love and loose

45%

Never to love

 9%
I have never loved so I don't know
 9%
I have never lost the one I truly love so I don't know
23%
Try me and ask again
14%

Jebb. Af þeim 22 sem að tóku þátt þá eru 45% sammála þessu gamla máltæki. Og bara svona svo þið vitið þá er ég það líka. 8)

Og já það er komin ný skoðanakönnun. :P

Anyways. Þá er þetta ekki mikið blogg, Sandra Yndið mitt og konan mín kom til Ak í gær og ég ætla að eyða eins miklum tíma með henni og ég get :haha::haha: (hún á fjölskyldu, ættingja og vini hérna svo að hún hefur ekki mikinn tíma). En ég giska á það eigi eftir að koma gott efni í bloggið um helgina því að við sitjum ekki rólegar og saklausar úti horni þegar við komum saman ;) Það er meira að segja djamm í kveld! :klikk:

Svo luma ég líka á tveim gegt fyndnum sögum sem að ég ætla að deila með ykkur um helgina 8| (ef ég næ að blogga) annars á mánudaginn. Það er nebbla brjáluð heimavinna sem að ég þarf líka að komast í um helgina! ZiM fór sko aðeins á kreik og hrekkti aðeins í morgun og síðastliðinn miðvikudag. :klikk::lol:

ZiM giving you a little catch up.


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 15:43:21 / Master ZiM

1. feb

Já í dag er fyrsti febrúar og það er merkisdagur! Nú? Því það eiga nokkrar merkilegar manneskjur afmæli í dag! 8)

Hann Höskuldur, bróðir minn, barnið mitt, vinur minn, á AFMÆLI í dag og að margra mati merkilegt afmæli þar sem hann verður 17 ára gamall í dag!! :haha::haha:
Þar sem 17 ár er ekkert stórafmæli þá er það samt nokk merkilegt þar sem hann fékk bílprófið í dag. Fór og náði í pappírinn áðan og má nú semsagt löglega fara að keyra einn!

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKAN MÍN :lol:

Og hún Katla, My kettles, vinkona mín á einnig afmæli í dag og það telst nú aðeins sem STÓRafmæli því að hún er 20 ára í dag. Komin á þrítugsaldurinn ;) Nú má hún Katla fara í ríkið og kemst löglega inn á flesta skemmtistaði.
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ KATLA MÍN :lol:

Og svo á pabbi Bjargar afmæli í dag. Til hamingju með pabba þinn Björg mín.:D

Dagurinn í dag er fyrsti dagurinn sem þú átt eftir ólifaðan. (Dale Carnegie)

ZiM whishing happy birthday..

» 5 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 17:16:47 / Master ZiM

Heim á fornar slóðir

Jæja, nú er fínustu helgi að ljúka.:D

Þetta er búin að vera róleg og þægileg helgi:). Eyddi gærdeginum í Hrísey!! Já, Hrísey af öllum stöðum 8). Ég fór semsagt í heimsóknir til Steinunnar og Jesú/Guðna.

Eins og gerist í næstum hvert einasta skipti sem að ég ætla að fara í þessa helv.... ferju þá missti ég af henni. Það er reyndar ekki 100 í hættunni fyrir mig því að ég get farið upp í Hátún meðan ég bíð eftir þeirri næstu. En ég ákvað að rölta aðeins gamla bæinn minn, Árskógssand, fyrst að ég var nú þarna og ekkert að flýta mér. :)


Heim á fornar slóðir eins og sagt er. Ég rölti um göturnar, fór á leikvöllinn og gömlu leiksvæðin sem að ég og Þórdís sóttum mest í (þeim sem að voru nálægt húsþyrpingunni). Þegar ég horfði niður 90° bratta, langa brekku og minntist þess að þarna fannst okkur rosa skemmtilegt að renna okkur niður þá mundi ég enn og aftur að ég var kolbilacrazy krakki. Psycho. Ég var svo mikill daredevil að það var sjálfum mér óhollt. Enda fékk ég ófáar, misgáfulegar hugmyndir og fékk Þórdísi alltaf til liðs við mig til að framkvæma þær:$. Sumar þessara hugmynda voru reyndar stórhættulegar:P. Ég komst líka að því að ég er STÓR. Já stór. Ég mundi ljóslifandi eftir þeim ófáu stundum sem að var eytt á þessum leikvelli, það er reyndar aðeins búið að breyta honum en samt ekki mikið:evil:. Þegar ég fór í hnjánum við að beygja mig undir spýtur og svoleiðis (þurfti að beygja mig alveg niður) í kastalanum þá komst ég að því að ég hlyti að vera orðin stór fyrst að maður rétt þurfti að beygja sig þarna forðum. Ég var líka miklu lipurri þegar ég var krakki. Hef stirðnað við að slasa mig svona oft. En ég er að verða fullorðin8|. Ég veit ekki hvort að það tengist aðvofandi tvítugsafmæli en ég er búin að vera að fá margar "hugljómanir" núna undanfarið um hvað mörg ár séu liðin og að ég sé "fullorðin".
Gamlar minningar helltust svo hratt og mikið yfir mig að heilinn í mér hafði varla undan við að vinna úr þessum upplýsingum. Mig langar ssssvvvooo rosalega að flytja þangað aftur og heiti ég því hér með að ég mun flytja þangað aftur áður en yfir lýkur.

Ætli ferjunni líki illa við mig eða er ég bara svona óstundvís?

Á föstudagskvöldið fékk ég hana Kötu í heimsókn og sátum við við spil og spjall heillengi. Gunni gekk svo til liðs við okkur og það var mjög gaman að því að fylgjast með honum tapa:$ (hann er nebbla tapsár:^) og bregst oft við á fyndin hátt þegar hann tapar:haha:.). Helvíti magnað kvöld..

Ég sakna Önnu konunnar minnar
Ég sakna Söndru konunnar minnar

ZiM growing up.

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 21:07:59 / Master ZiM

I'm walking in Darkness.

Everything around me is dark,

I am all alone.

I can’t find any mark

of anyone, not a tone.

 

I start to shout

hoping someone hears.

I want to get out,


my eyes are flowing tears.

 

Panic takes over me,

What have I done.

This cannot be,

I can’t be gone?


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox